Tengjum saman fólk, þekkingu og tækifæri á Íslandi og í Evrópu

Eyvör NCC-IS er Hæfnisetur Íslands í netöryggi og hluti af evrópsku neti hæfnisetra á vegum ECCC. Eyvör leiðir saman stjórnvöld, háskóla, rannsóknarumhverfið og atvinnulíf með það að markmiði að byggja upp þekkingu, hæfni og getu á sviði netöryggis hér á landi.
Starfsemin nær meðal annars til uppbyggingar íslenska netöryggissamfélagsins, norræns og evrópsks samstarfs, styrkja og nýsköpunar, stuðnings við framkvæmd evrópsks netöryggisregluverks, greiningar á hæfniþörf og uppbyggingar menntunar og rannsókna.