Netöryggi - Seigla samfélagsins á tímum stafrænna ógna
Október er alþjóðlegur netöryggismánuður og af því tilefni býður Fjarskiptastofa til ráðstefnu um netöryggismál á Hótel Hilton þann 27. október nk. undir heitinu:
Netöryggi - Seigla samfélagsins á tímum stafrænna ógna
Á ráðstefnunni koma saman lykilaðilar úr íslensku samfélagi ásamt erlendum sérfræðingum og gestafyrirlesurum, Þar verður miðlað þekkingu og efnt til samtals um netöryggi, þjóðaröryggi og þær stafrænu ógnir sem samfélagið stendur frammi fyrir. Markmiðið er að stuðla að sameiginlegri sýn og auknu samstarfi um seiglu, viðnámsþrótt og öryggi Íslands.
Skráning og nánari upplýsingar má finna hér.